
11.-13. september 2026
Ráðstefna JKFÍ: Hlédrag, flæði
Jógakennarafélags Íslands býður félagsmönnum á ráðstefnu félagsins sem verður með öðruvísi þema, Hlédrag – vatn og flæði.


JKFÍ
Jógakennarafélag Íslands er vettvangur fyrir jógakennara sem búsettir eru á Íslandi. Félagið stendur fyrir námskeiðum, fræðslu og tengslamyndun jógakennara með samverustundum af ýmsu tagi.
Þátttaka á ráðstefnunni er eingöngu fyrir félagsmenn.
Hér má svo finna upplýsingar fyrir nýja félagsmenn. Greiða þarf bæði árgjald og ráðstefnugjald til þess að skráning á ráðstefnuna teljist gild.
Dagskrá
Hlédrag JKFÍ fer fram í notalegu umhverfi þar sem sérstök áhersla er lögð á jafnvægi, vellíðan og endurnæringu. Dagskráin verður fjölbreytt og gefur jógakennurum tækifæri til að staldra við, njóta og tengjast. Markmið okkar er að skapa hlýlegt og nærandi rými þar sem hvert og eitt okkar getur fundið það sem hentar best, hvort sem það er hreyfing, kyrrð eða samvera.
Dagskrá helgarinnar!


Staðsetning
Ráðstefna JKFÍ verður haldin á Héraðsskólanum Laugavatni. Jógakennarafélagið niðurgreiðir ráðstefnuna veglega í tilefni afmælis og innifalið er fæði, allir viðburðir og aðgangur að heilsulind Laugarás Spa. Félagsmenn greiða sjálfir fyrir gistingu (sjá upplýsingar í tölvupósti).
